Auglýsing

Fanney og Kalli

Hæhæ, við heitum Kalli og Fanney og búum í Svíþjóð
Ætlum að blogga hérna ykkur til gamans:D

Seinustu dagarnir...

17. ágúst 2009 klukkan 21:20
Jæja núna er Fanney farin heim til Íslands. Hún þurfti að fara aðeins fyrr þar sem hún er að byrja í skólanum. Allavena þá erum við búin að vera á fullu hérna seinustu daga að pakka og taka til. Hefði ekki trúað því hversu mikil vinna það er að flytja en sem betur fer er það mesta búið núna og allt komið ofaní kassa.
Þeir frá Samskipum koma síðan á morgun og ná í dótið og skipið fer síðan 20. ágúst til Íslands.

Annars í dag fór ég og hitti leiðbeinandann minn í lokaverkefninu og sýndi honum hvað ég var búinn með og leist honum bara vel á held ég. Þetta fer allt að smella saman hjá mér þannig þetta er mjög spennandi.

En síðan í dag fékk ég sent lokaverkefni sem tveir strákar sem ég þekki eru að klára því ég mun vera sækjandi næsta föstudag þegar þeir eiga að verja verkefnið sitt. Þannig dagurinn í dag og næstu dagar fram að föstudeginum fara í það að stúdera þeirra verkefni og reyna að finna góðar spurningar og athugsemdir.

Seinasta þriðjudag komu strákarnir frá Danmörku yfir til okkar, Þórir, Rúrik, Krissi og Jón Þór. Mjög gaman að fá þá hingað í svona lokadjamm og heppnaðist það bara mjög vel.


Ég og Fanney fórum síðan í leiðangur með dýnurnar okkar. En þar sem þær voru strax orðnar lélegar eftir aðeins notkun í 1 ár (Það var 10 ára ábyrgð) þá fórum við með þær og skiluðum þeim og fengum nýjar og aðra tegund. Á Íslandi hefði þetta ekki verið neitt vandamál en þar sem ég er maður bílslaus þá er þetta ekki jafn einfalt og maður hefði haldið. En við dóum ekki ráðalaus og settum báðar dýnurnar ofaná hjólið mitt, teipuðum, bundum og pokuðum dýnurnar og síðan var bara lagt af stað. Jysk (Sama og rúmfatalagerinn á ísl.) er í 3,5 km fjarlæg frá okkur og rúmman klukkutíma seinna vorum við mætt uppí búð sveitt og þreitt.


Sem betur fer fengum við að skipta og heimleiðin var töluvert léttari þar sem þær dýnur er ekki svona gormadýnur heldur svona tempurdýnur og þær voru upprúllaðar.

Síðan eru komnar inn fleiri myndir hér til hliðar undir nafninu Ágúst 2009.


Myndir

04. ágúst 2009 klukkan 19:20
Hæ allir, það eru komnar nýjar myndir inná síðuna okkar, heitir júní og júlí.

Allt gott að frétta héðan. Fáum þvottavél og þurrkara í fyrramálið sent heim.  Mikil tilhlökkun á þessum bæ. :D

kv. Fanney og Kalli

Endalausar þrumur og eldingar

03. ágúst 2009 klukkan 11:17
Ég hélt að ég hefði heyrt í hæstu þrumum um daginn. En nei við Kalli vöknuðum í morgun við hæstu þrumur bara ever. Það var svo brjáluð rigning og þrumur og eldingar að það var ekki hægt að sofa við þetta. Venjulega kemur þetta á kvöldin en svona er þetta. Því miður var rosalega gott veður í apríl,maí og júní. En núna í júlí er búið að vera alltof mikil rigning finnst mér. Þar sem mig langar að fara í sólbað þá er rigningin ekki alveg í uppáhaldi.

En að öðru. Við erum að fara fá gesti til okkar, þá Rúrik, Krissa og Þóri þann 11. ágúst. Það verður stuð hérna hjá okkur í öllum kössunum. Íbúðin okkar er eiginlega á hvolfi. Erum að sjálfsögðu byrjuð að pakka, en klárum það í kringum 13-15 hugsa ég. Því maður þarf að nota ýmislegt.:)

En annars eru bara 13 dagar í það að ég komi heim og aðeins lengra í Kalla.

kv. Fanney og Kalli

Margt að gerast:D

24. júlí 2009 klukkan 17:53
hæhæ

Þá er gestaganginum lokið hjá okkur. Núna fer bara að líða að því að við flytjum heim. Ég(Fanney) er byrjuð að pakka einhverju af dótinu okkar.

En annars var rosalega gaman hjá okkur þegar Agnes og Birgir voru hérna. Við gerðum ýmislegt. Til dæmis fórum í Gekås sem er í Ullared. Það var þvílík rigning þegar við mættum og við hlupum til þess að við yrðum ekki alveg gegnvot og þegar við komum að innganginum. Þá var geggjað löng röð. Sem var frekar fyndið og það var hleypt inn í hollum. Svo þegar inn var komið, þá gat maður vart hreyft sig fyrir fólki. Þannig það er greinilegt að það er ekki sniðugt að fara þangað á laugardegi.
Við fórum einnig til Landskrona. Þar fórum við að skoða höll. Fórum rúnt um næstum alla höllina með mjög svo skemmtilegri konu. Hún hafði greinilega mjög gaman að starfi sínu. Þetta var víst höll lengi vel og var eiginlega fangelsi líka. Skoðuðum dýflissuna og svona. Þetta var mjög skemmtilegt. Lærðum um konu sem að var þarna í fangelsinu, vegna þess að hún drap einhver 8 börn sem hún hafði tekið að sér af munaðarleysingjahæli. Fékk nefnilega borgað fyrir að taka barn að sér og sá aldeilis gróða í þessu. En hún hafði misst sjálf börn og var greinilega ekki heil í hausnum greyið konan.
Svo fórum við á Lomma. Sátum þarna á ströndinni og nutum góða veðursins.

Fórum einnig til Malmö og skoðuðum Turning Torso. Reyndar komumst við ekki inn í húsið eins og þegar við fórum seinast að skoða það. Löbbuðum síðan verslunargötuna og fórum á sýningu um City Tunnel. En það á að búa til lestargöng undir miðri malmö til þess að gera samgöngur léttari. Þetta verkefni á að kosta 10 milljarða sænskra króna. Síðan enduðum við í Ikea og keyptum hitt og þetta. Til dæmis keyptum við þessa fínu kassa. Svo maður getur aldeilis pakkað í þá.

En annars er ég búin að kaupa mér stangarstökksskó sem heita Nike Zoom PV II. Þeir eru ekkert smá flottir. Alveg hvítir og smá rautt og blátt í þeim. Ég get aldeilis byrjað að stökkva í haust.:)

Heyrðu síðan erum við núna búin að fara fram og til baka uppí jysk og elgiganten. Bæði útaf dýnunum okkar. Sem eru frekar ónýtar greyin og svo líka útaf þvottavélinni og þurrkaranum sem við ætlum að kaupa.
Fórum fyrst með foreldrum Kalla uppeftir og tókum með okkur dýnurnar og ætluðum aldeilis að geta bara skilað þeim. En konan sem við töluðum við var eitthvað voða erfið við okkur. Þannig við urðum að taka dýnurnar heim aftur. Síðan fórum við í gær og töluðum við þau í Jysk og þá sagði strákurinn okkur að maður að nafni Dick gæti hjálpað okkur. Svo fórum við líka í gær í elgiganten því við ætluðum að athuga með þvottavél og þurrkara. Þá lentum við á þessari frábæru stelpu sem að við keyptum af þvott og þurrk. En svo um kvöldið í gær þá sáum við á netinu að við gætum fengið betra verð í netbúðinni. Þannig við fórum aftur í dag til þess að athuga hvort við gætum ekki fengið 1000 kallinn sem við settum inná hinar vélarnar til þess að fá betri vélarnar á netinu. Herðu þá sagði stelpan við okkur að hún skyldi bara redda þessu fyrir okkur. Þannig núna fáum við þvottavél og þurrkara sent heim á þessum þvílíka afslætti sem hún gaf okkur.
Semsagt til þess að segja þetta í stuttu máli allt sem ég var að reyna bulla hérna fyrir ofan þá erum við komin með mjög góðar vélar á góðu verði og fáum þær beint frá búðinni í staðinn fyrir netbúðinni. En þetta eru víst 2 ólíkar búðir með sömu vörurnar.
En ef við snúum okkur aftur að Jysk málinu, þá hittum við þennan mann með þessum skemmtilega nafni Dick. Við vorum búin að prenta voða fínar myndir af rúminu okkar og sýndum honum og svona og hann var mjög jákvæður við okkur að við gætum líklega skipt dýnunum út og fengið þá aðrar dýnur í staðinn. Því að þessar dýnur sem við erum með eru greinilega ekki fyrir svona rúm með ömmu stillingu eins og ég vil kalla þetta. Svona sem hægt er að lyfta bakinu á með fjarstýringu.

Allavega við mættum alveg þvílíkt jákvæðu viðmóti í dag. Sem er svo gaman. Æðislegt að lenda á fólk sem er svona frábært.

Þannig núna það sem við þurfum að gera er að bíða og sjá til hvað gerist.

Annars er búið að vera rosa þrumur og eldingar hérna í Lundi þessa dagana og svo sól inná milli. Við vorum einmitt að hjóla áðan heim og þá reyndum við að drífa okkur aðeins vegna þess að svart ský var óðum að nálgast okkur. :)

Það er svo rosalega stutt þangað til við flytjum heim, ég eiginlega trúi því bara ekki.

En myndir koma inn fljótlega. Nóg af myndum sem eiga eftir að koma á netið. Margt búið að gerast :D

Kv. Fanney og Kalli

Von á gestum:)

14. júlí 2009 klukkan 22:37
hæhæ, þá er allt tilbúið fyrir næstu gesti sem eru foreldrar Kalla. Það er búið að taka allt til og þrífa og svo auðvitað er búið að baka köku:)

Það var rosalega gott veður í dag. Fórum út að hlaupa og það var eiginlega of heitt til að hlaupa. Vonum að það verði svo gott næstu daga:)

Niðurfallið í sturtunni er því miður stíflað. Alveg hrikalega ógeðslegt verð ég að segja.

Verður ekki lengra í þetta skiptið:)

kv. Fanney og Kalli:)

Langt og skemmtilegt blogg:D

09. júlí 2009 klukkan 23:06
Hæhæ

Núna byrja ég að skrifa þetta í annað sinn. Þar sem ég var komin með þetta fína blogg og það þurrkaðist bara allt út. En svona er þetta

Það er búið að vera gaman á þessum bæ seinustu daga. Foreldrar mínir(Fanneyjar) komu í heimsókn til okkar þann 3. júlí en það er föstudagur. Það var ekki mikið gert fyrsta daginn. Löbbuðum um bæinn, slökuðum á, borðuðum köku og sóttum bílinn til Hertz. Svo var spilað um kvöldið.
Svo kom laugardagur og við vöknuðum snemma, keyrðum síðan af stað í áttina til Ystad. Stoppuðum í Johanna museum. Sem er mjög flott safn af gömlum hlutum. Mikið af flottum farartækjum og svona. Það var til dæmis risastór spiladós. Sem var spilað á í hádeginu og það voru sko brjáluð læti. En það hafði sinn sjarma að sjálfsögðu. Hefði kannski mátt spila þetta úti☺
En svo fórum við til Ystad, það var mikið líf í bænum enda laugardagur. Það var til dæmis fólk í þjóðbúningum að spila á hljóðfæri og fullt af mörkuðum og fleira.



Í Ystad gerast víst Wallander sögurnar. Bæði bækur og myndirnar. Þannig þetta er frægur bær:)
Þar var hægt að fara í rúnt á slökkviliðsbílnum en það tók klukkutíma. Þannig við létum það vera. Ég tók bara mynd af bílnum. Hrikalega flottur gamall slökkviliðsbíll.




Síðan keyrðum við í áttina til Lundar aftur. Á leiðinni stoppuðum við hjá stóru vatni og þar voru að sjálfsögðu teknar nokkrar myndir. Svo var keyrt í gegnum Svíþjóð á minni vegunum og skoðað landslagið og svona. Svo rosalega fallegt landslagið:)




Á sunnudeginum var farið í risastórt moll sem er skandinaviens största varuhus. Það var risastórt. Það heitir Gekås. Það er semsagt í bæ sem heitir Ullared, pínulítill bær, ca 200 km í burtu frá Lundi. Það var mjög gaman að fara þangað. Það var nú eitthvað keypt. Það var semsagt allt til þarna og Svíar fara víst þangað til að kaupa fyrir árið. Það var einmitt par á aldur við okkur sem við sáum og það var sko að kaupa fyrir árið. Ég taldi 10 brúsa af þvottalögri og 10 dúnka að þvottaefni og fleira í þeim dúrnum. Það er víst keppni um lengsta miðann í innkaupum.
Það var reyndar lokað klukkan 5 því miður, annars hefði maður alveg getað verið í svona 2 tíma í viðbót:) Svo var keyrt heim og við komum svo seint heim að það var pöntuð þessi fína pizza :) Tók reyndar engar myndir af mollinu því miður

Svo á mánudeginum fórum við í Kallbybadet og þar var tanað vel og svo kælt sig í lauginni. Mjög fínt veður:) Reyndar vorum við stungin af geitungi. Kalli var reyndar eini sem var heppinn að vera ekki stunginn. En það er mjög vont skal ég ykkur segja. Reyndar kom ekkert eftir stunguna sem betur fer. Mamma fékk fínan marblett.
Fórum svo í willys og þar var keypt hitt og þetta. Svo var góði kjúklingarétturinn í matinn:)

Fórum á þriðjudeginum í Tykarpsgrottan sem er flottur hellir rétt fyrir utan Hässleholm. Þetta er hellir gerður af mannavöldum og það var verið að grafa út kalkstein. Þetta var eiginlega kalksteinanáma. En það var hætt að grafa út árið 1888 og í kringum 1950 þá var þetta túristastaður. Við fórum svo í gegnum lítið gat og löbbuðum ca 6 metra í 1 metra hæð. Það var sko stuð. En þessi litli gangur heitir jólasveinagangurinn. En þar á maður að geta óskað sér. En maður verður að vera góður allt árið, þá rætist óskin á jólunum. Það var hægt að fara í kringum í staðinn fyrir að fara í litla ganginn en það var aðeins lengra en margir gerðu það. Fórum síðan í bæinn í Hassleholm og keyrðum líka til Kristianstad. Fengum okkur þar að borða og villtumst síðan smá á kortinu á leiðinni heim. En það var lagað síðan:)




Á sumum köflum þurfti maður að beygja sig:) Ekki beint hellir fyrir menn yfir 1 og 90 :)

Þarna er hellirinn 1 m eins og sést:)


Þarna erum mamma og pabbi í Kristianstad

Fórum síðan út að borða um kvöldið á Times Restaurang og hérna koma nokkrar myndir frá kvöldinu





Þarna erum við öll fyrir utan Grand hotel. Hrikalega flott hótel:)


En það var rosalega gaman að hafa þau hjá okkur:)
Núna bíðum við bara eftir næstu gestum en það eru foreldrar Kalla sem koma 15 júlí. Hlökkum mjög til:)

En að öðru við erum búin að vera mjög dugleg að hreyfa okkur eins og við getum. Hlaupið mikið og ætlum að koma flott heim.
Ég (Fanney) er búin að panta flug heim. Staðfestur lendingardagur er 16. ágúst. Mjög skrítið að vera komin með dag á flutning heim. Sendum allt dótið með skipi þann 20 en Kalli kemur heim nokkrum dögum eftir mér.
Ég þarf nefnilega að fara á námskeið í vikunni 17-21 ágúst. Svo byrjar skólinn 25 ágúst og þá þarf ég að mæta í skólann á Akureyri og verð þar alveg 25-28.

En við hjóluðum 30 júní til Lomma. Alveg 22 og hálfan km og farið á ströndina. Ætluðum alls ekki að hjóla svona langt en allt í einu vorum við bara komin. Fyrir utan það að við vorum búin að hlaupa 3 km daginn áður og svo hlupum við 3 km daginn eftir. Þannig það er gott þrekvirki útaf fyrir sig.

Set hérna inn nokkrar myndir í viðbót:)


Ég að leika í Titanic:)

Við nýbúin að hlaupa í rigningunni:)

Rétt náði að hlaupa út og taka mynd:)

Þótt það sé næstum alltaf sól hérna, þá kemur rigning líka:)

Okkur fannst við þurfa að verða 5 ára aftur


Ég klifraði upp í tré og þóttist vera ofurhetja:)

Við hjóluðum til Lomma og þetta var á leiðinni til baka:)


Held ég segi þetta gott í bili. Þetta er mjög langt blogg ég veit. En það hefur ekki komið blogg í einhvern tíman. :)
Ég setti link á ýmsa hluti í þessum bloggi. Ef maður fer með músina yfir sum orð þá er hægt að fara á heimasíðuna eða vita hvar á landinu staðurinn er:) Það er undirstrik undir orðunum sem eru með tengil. Það eru fleiri myndir inná myndasíðunni hérna til vinstri.. Það stendur aðalvalmynd og svo stendur myndir fyrir neðan þar. Setti ekki allar í bloggið þótt að það eru margar í því.
En annars segir ég góða nótt:)
kv. Fanney og Kalli

Sólarlandaveður

26. júní 2009 klukkan 17:19
hæhæ allir sem skoða síðuna okkar:D

Það er búið að vera bongóblíða hérna hjá okkur í Svíden. Fengum einn frídag í gær frá sólinni sem var svosem fínt, þar sem við náðum okkur í smá bruna á miðvikudaginn:)
En við notuðum aldeilis sólina í þessari viku, fórum á mán, þri og miðvikudag í Källbybadet. Virkilega næs svæði og við lágum þarna á grasinu og þar á milli hoppaði maður í sundlaugina til að kæla sig niður:D
Það eru aðeins meira en 3 km þangað, þannig þetta er ágætur spölur að hjóla. En þegar við vorum á leiðinni þangað þá sáum við mann alveg mjög vel klæddan. Hann hefur líklega haldið að hann væri á norðurpólnum. Hann var síðan í svartri úlpu og ég sem var að kafna í hlýrabolnum mínum hehe. En svona er þetta, fólk er misjafnt.
Fólk hérna er mikið fyrir að tana. Sá einmitt einn kall í sundi, hann var að vinna í hliðartaninu. Búinn að bretta upp sundbuxurnar eins hátt og hann gat hehe.
Í dag og á miðvikudag var alveg heiðskýrt og sól og svona 25 stig eða meira. Hrikalega æðislegt verð ég að segja.

Það er ótrúlegt hvað þessi tími hérna er búinn að vera fljótur að líða. Hjóluðum áðan út í willys í bara léttum fötum og það er svo stutt síðan að maður var að frjósa á puttunum og í andlitinu á leiðinni.
Júní er að klárast og svo eru að fara koma gestir og við hlökkum svo rosalega mikið til að fá foreldra okkar hingað. Njóta sumarsins og svona.

Annars er ég að fara í háskóla í haust og er komin inn í HA í iðjuþjálfun. Er rosalega ánægð með það bara.

kv. Fanney og Kalli brúnu á Breiðgötunni:D

sund og svona

20. júní 2009 klukkan 15:40
Hæhæ,
Vil byrja á að óska Agnesi til hamingju með útskriftina í dag:D

Við Kalli skelltum okkur í sundlaugina í dag sem heitir Källbybadet, virkilega fín sundlaug og mjög stórt svæði, verður ekki leiðinlegt að hanga þarna í sumar í blíðunni. Það var nú gott veður meðan við vorum í sundi, en rétt áður þegar við vorum að hjóla þangað þá kom þessi fína rigning.
Það hefur verið núna í gær og seinustu 3 daga þrumur og eldingar og engin smá demba. Maður hættir sér ekki út fyrir dyrnar, ekki nema að fara þá í fría sturtu:)

En í gær fórum við að skoða kulturen. En það er svona svæði með gömlum mjög flottum húsum. Það var mjög gaman að skoða það. Svona svipað og árbæjarsafn:)

Við segjum annars alllt það besta, það á víst að koma geggjað veður á mánudag. En það er erfitt að treysta spánni hérna, hún breytist liggur við á 30 mín fresti.

kv. Fanney og Kalli

Hej!

12. júní 2009 klukkan 19:08
Það er margt búið að gerast hjá okkur seinustu vikurnar, fyrst kom Soffía í heimsókn og var rosa gaman að fá hana. Stelpurnar nýttu tímann vel það var verslað og legið í sólbaði. Fórum í party til Peters, sem var með Fanneyju í sænskunáminu og þar var hrikalega gaman:)


Síðan fengum við gesti frá Danmörku en Jón Þór, Salvör og Þórir komu til okkar seinustu helgi og gistu tvær nætur. Þá var eldaður góður matur og djammað. Á föstudaginn var kjúklingaréttur og svo var kaka og ís í eftirrétt. Síðan var spilað, farið í Wii og svo kíktum við niður í bæ og þar var dansað og haft gaman. Á laugardaginn kíktum við til Malmö. Skoðuðum m.a. Turning Torso og svo var líka labbað um miðbæinn. Um kvöldið vorum við með Kassler sem heppnaðist mjög vel bara síðan var bara djammað framm eftir nóttu. Rosa gaman að fá krakkana yfir og helgin heppnaðist mjög vel bara.

 

Síðan er ég að vinna á fullu í lokaverkefninu þessa daganna. Gengur bara mjög vel en ég er að búa til módell sem hermir eftir uppsteypu á húsi. Er núna langt kominn með grunnmódelið en síðan þarf að byggja meira ofan á það. Get ekki sagt annað en ég er heppinn með leiðbeinanda en hann hefur alveg gífulegan áhuga á því sem ég er að gera og það er ekki vandamál að fá hjálp frá honom.

Síðan erum við búin að vera dugleg að hreyfa okkur líka bæði í ræktinni og svo að fara út að hlaupa. Erum bæði með alveg rosalegar harðsperrur. Sem er bara gott:)

Annar hefur veðrið verið leiðinlegt seinustu daga, bara endalaus íslensk rigning.

Myndir frá Maí og Júní koma núna rétt á eftir.

Kveðja frá Svíþjóð,
Kalli og Fanney

 

smá update 2

26. maí 2009 klukkan 19:48
Eins og ég sagði hérna í blogginu fyrr í kvöld að við ætluðum út í göngutúr. Herðu við í sakleysi okkar löbbum niður breiðgötuna. Þá heyrum við í háværum þrumum, og við hugsum bara næs, ekkert smá töff:) Þá sagði Kalli já það rignir örugglega. Rétt eftir að Karl Raymond segir það, hvað gerist, það kemur soleiðis hellidemba og við erum ekki að tala um neina venjulega hellidembu. Það var ekki hægt að vera úti. Þannig við náum að hlaupa undir svona hlíf á einum barnum sem var nálægt og það bara bætist í hraðann á rigningunni. Sjitturinn ég hef aldrei lent í öðru eins. Þetta voru svona risadropar. Svo þegar við vorum búin að vera undir hlífinni í smá stund þá ákveðum við að halda áfram, en við ætluðum að fara í búðina. Þannig við hlupum alveg slatta góða leið í átt að búðinni, en þá var rigningin orðin aðeins minni. Þannig að þegar við komum síðan heim, þá má segja að við vorum alveg rennandi blaut.

EN hérna ég bloggaði áðan smá, hérna fyrir neðan, tékkiði á því líka:P

heyrumst
kv. F og K

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Svíþjóð